Fréttir | 22. október 2021 - kl. 14:48
Stebbi Jak heldur tónleika á Blönduósi

Stebbi Jak úr Dimmu ætlar enn og aftur að ferðast um landið og skemmta fólki með broti af bestu lögum í heimi ásamt léttu gríni. Með honum til halds og trausts verður hinn hæfileikaríki og hressi Hafþór Valur. Þeir félagar verða í Félagsheimilinu á Blönduósi laugardagskvöldið 23. október klukkan 21.

Á dagskránni eru ýmsar sakbitnar sælur (guilty pleasures), epík og singalong og hressilegt spjall um allt milli himins og jarðar.

Miðasala er á Tix.is og kostar miðinn 3.500.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga