Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 11:34 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 11:34 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 11:34 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 11:34 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 11:34 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 11:34 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Rekaviður – lifandi gagnabanki er heiti á viðburði sem fram fer 30. október næstkomandi í Nesi listamiðstöðinni á Skagaströnd og er til húsa á Fjörubraut 8. Um er að ræða opnun sýningar og sýning heimildarmyndar. Rekaviður – lifandi gagnabanki er kennslufræðilegt rannsóknarverkefni sem hefur það að markmiði að vekja athygli á loftslagsbreytingum á Norðurslóðum með tilvísun til farleiða rekaviðar, mikilvægi skógræktar sem mótvægi loftslagsbreytinga en einnig sem þýðingarmikill hluti af sögu Íslands og menningu. Verkefnið Rekaviður er líka hvatning til allra um að taka þátt í sköpun verka úr rekaviði og til að leggja sitt af mörkum í skógrækt sem mótvægi við loftslagsbreytingar.
Þetta kemur fram í tilkynningu en þar segir einnig:
Rekaviður kemur víða fram í sögu og menningu Íslands og leikur stórt hlutverk í norrænni goðafræði. Viðurinn var mikilvæg auðlind þjóðarinnar um aldir, án hans hefði föst búseta á Íslandi orðið mun erfiðari og hugsanlega ekki orðið varanleg. Rekaviðurinn á uppruna sinn í Evrasíu og Norður-Ameríku og er “lifandi gagnabanki” – Út frá farleiðum hans um Norðurslóðir má lesa svæðisbundnar loftslagsbreytingar síðustu tólf þúsund ára.
Verkefnið samanstendur af ferðasýningu sem er kynning á mismunandi nýtingu rekaviðar, heimildarmynd um rekavið (45 mín.) og vefsíðu verkefnisins www.rekavidur.com þar sem er ítarlegri fróðleikur.
Þeim sem vilja gerast „gestgjafar“ sýningarinnar og/eða heimildarmyndarinnar er bent á að hafa samband við Ines meier@lichtung-berlin.de.
„Rekaviður – ákall í verki“ var upphaflega hugmynd sem spratt upp í „Kollektiv Lichtung“ í Berlin en er unnin í samstarfi við Nes listamiðstöð á Skagaströnd og í samvinnu við Háskólasetur Vestfjarða. Verkefnið er styrkt af Rannís – Rannsóknamiðstöð Íslands.
Kollektiv Lichtung
Ines Meier lærði ljósmyndun við University of Fine Arts í Braunschweig og École nationale supérieure des Beaux-arts í París. Hún er nú verkefnastjóri hjá New School for Photography í Berlín og vinnur einnig sem blaðamaður, framleiðandi og listamaður.
Inka Dewitz er kvikmyndagerðarkona og ráðgjafi. Hún nam alþjóðlega landbúnaðar- og þróunarpólitík við Humboldt háskólann í Berlín og kvikmyndagerð við Filmhaus Köln/HFF í Babelsberg. Hún hefur unnið fyrir alþjóðadeild BBC og framleitt verðlaunaðar heimildarmyndir.
Saman reka þær vinnustofu í Berlín sem leggur áherslu á átaksverkefni í umhverfismálum.
Sýningin „Rekaviður – lifandi gagnabanki“ er öllum opin og fólk hvatt til að kynna sér þennan áhugaverða efnivið.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |