Fréttir | 24. nóvember 2021 - kl. 11:00
Eldvarnafræðsla mikilvæg

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna kynnir eldvarnir heimilisins fyrir grunnskólabörnum og fjölskyldum þeirra fyrir hver jól. Í síðust viku hófst þetta árlega eldvarnarátak í Grunnskólanum í Borgarnesi. Landssambandið beinir sjónum sínum til grunnskólabarna í 3. bekk og kynnir fyrir þeim grundvallaratriðin varðandi eldvarnir heimilisins.

Jóhannes Kári Bragason, slökkviliðsstjóri í Húnaþingi vestra, ritar pistil á vef sveitarfélagsins um eldvarnarátakið. Segir hann að átakið sé mikilvæg viðbót við forvarnarstarf sem unnið er á vegum Eldvarnabandalagsins, slökkviliðanna, slysavarnadeilda og fleiri árið um kring.

„Hér á landi farast að meðaltali um tvær manneskjur í eldsvoðum á ári hverju. Miklu fleiri verða fyrir líkamlegu og andlegu heilsutjóni af völdum eldsvoða ár hvert. Hér glatast auk þess að meðaltali á hverju ári um tveir milljarðar króna í eldsvoðum,“ segir Jóhannes í pistli sínum og svo kemur hann með góð ráð sem allir ættu að kynna sér:

Reykskynjarar bjarga
Komi eldur upp á heimili hefur heimilisfólk oft mjög skamman tíma til að forða sér út. Stundum líða bara nokkrar mínútur uns íbúð fyllist af reyk og verður jafnvel alelda. Því er algjört lykilatriði að á heimilum séu nægjanlega margir virkir reykskynjarar til að vara fólk við hættunni, vekja það af svefni og gefa svigrúm til að bjarga lífi og limum.

Best er að hafa reykskynjara í öllum rýmum. Gott er að hafa reykskynjara samtengda, að minnsta kosti á stærri heimilum. Prófa á reykskynjara að minnsta kosti árlega og skipta þarf árlega um rafhlöðu í reykskynjurum með 9 v rafhlöðu. Endurnýja skal reykskynjara á tíu ára fresti.

Tvær flóttaleiðir eða fleiri
Mikilvægt er að allir hafi tvær eða fleiri flóttaleiðir úr brennandi íbúð. Skortur á flóttaleiðum getur orðið fólki að fjörtjóni eins og nýleg dæmi sýna. Í sumum tilvikum er unnt að fjölga flóttaleiðum með því að koma fyrir neyðarstiga (fellistiga) af efri hæðum.

Við hvetjum fjölskyldur til að gera einfalda flóttaáætlun og ákveða stað til að hittast á utandyra ef rýma þarf heimilið. Ef eldur er í stigagangi fjölbýlishúss á fólk að halda sig inni í íbúðinni og láta vita af sér við glugga eða á svölum.

Slökkvibúnaður
Margir hafa komið í veg fyrir stórtjón með notkun slökkvibúnaðar. Eldvarnateppi á að vera sýnilegt á vegg í eldhúsi en þó ekki of nærri eldavél. Reynið ekki að slökkva eld í olíu með vatni. Það gerir illt verra. Notið eldvarnateppið.

Slökkvitæki á að vera sýnilegt við helstu flóttaleið og hafa á slökkvitæki við alla útganga í fjölbýli. Fylgja þarf leiðbeiningum framleiðanda um viðhald tækjanna. Hringja ber tafarlaust í 112 ef eldur kemur upp og mikilvægt er að leggja sjálfan sig eða aðra aldrei í hættu við slökkvistarf.

Með aðgát í daglegri umgengni og nauðsynlegum eldvarnabúnaði getum við dregið verulega úr líkum á að eldur komi upp og valdi tjóni á lífi og eignum. Við slökkviliðsmenn viljum því hvetja fólk eindregið til að huga að eldvörnum heimilisins. Það er ekki síst mikilvægt nú í aðdraganda hátíðanna þegar eldhætta á heimilum eykst.

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga