Mynd: blonduskoli.is
Mynd: blonduskoli.is
Fréttir | 29. nóvember 2021 - kl. 10:15
Eldvarnafræðsla í Blönduskóla

Nemendur í þriðja og fjórða bekk Blönduskóla fengu heimsókn á föstudaginn frá Ingvari slökkviliðsstjóra og Birnu slökkviliðsmanni. Tilefnið var árlegt eldvarnarátak Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Markmiðið er að hvetja til varkárni í umgengni við eld og vekja athygli á eldvarnabúnaði sem hverju heimili er nauðsynlegur, svo sem reykskynjara, eldvarnarteppum og slökkvitækjum.

Heimsóknir í þriðja bekk grunnskólanna á landinu er liður í átakinu. Börnin fengu að gjöf söguna um Loga og Glóð og Brennu-Varg. Í sögunni er að finna allar upplýsingar sem þarf til að leysa Eldvarnagetraunina. Börnin geta skilað inn getrauninni til 11 janúar en svo er dregið er úr réttum lausnum og vegleg verðlaun eru í boði.  

Tengd frétt:

Eldvarnafræðsla mikilvæg

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga