Fréttir | 07. desember 2021 - kl. 10:14
Jólaflóamarkaður á Skagaströnd

Jólaflóamarkaður verður haldinn laugardaginn 11. desember í Nesi listamiðstöðinni á Skagaströnd klukkan 12-17. „Áttu handverk, bækur, spil, dót, föt, málverk eða muni sem nýtast ekki lengur á heimilinu og leita nýrra ævintýra í jólapakkann,“ segir í auglýsingu frá listamiðstöðinni. Kakó, djús, smákökur og jólabíó verður í boði á meðan markaðurinn stendur.

Hægt er að panta borð (ókeypis) hjá Evu í síma 695 9168. Einnig verður borð og baukur til styrktar Jólasjóðnum góða fyrir þá sem vilja til þeirra sem minna mega sín.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga