Íþróttamiðstöðin á Blönduósi. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson.
Íþróttamiðstöðin á Blönduósi. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson.
Tilkynningar | 07. desember 2021 - kl. 11:27
Íþróttamiðstöðin á Blönduósi auglýsir eftir starfsmanni

Íþróttamiðstöðin á Blönduósi óskar eftir að ráða karlmann í 20%-40% starfshlutfall og afleysingar. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Starfið er vaktavinna sem felur m.a. í sér:

  • Umsjón og eftirlit með búnings- og baðklefum, íþrótta- og sundlaugarmannvirkjum og öðru því sem mannvirkinu tilheyrir.
  • Vinna við ræstingar, afgreiðslu, símavörslu, öryggisgæslu og annað það sem til fellur
  • Þvott og frágang á handklæðum, sundfatnaði og æfingavestum.
  • Aðstoða íþróttakennara og þjálfara eftir þörfum og sjá til þess að þeir geti nálgast áhöld og búnað sem þarf á hverjum tíma. - Eftirlit tækja og áhalda þannig að búnaður sé í lagi.
  • Starfsmaður þarf að hafa áhuga og skilning á íþróttum og æskulýðsstarfi, vera þjónustulipur með góða framkomu, og hafa gaman af að starfa með börnum, unglingum og öðrum þeim sem mannvirkið stunda.
  • Starfa að öðru leyti samkvæmt almennum verklagsreglum, verklýsingum og fyrirmælum frá forstöðumanni Íþróttamiðstöðvar.
  • Annað það sem starfsmanni kann að vera falið og tengist starfsemi íþróttamiðstöðvarinnar.

Hæfniskröfur:

  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum.
  • Tölvukunnátta

Umsækjendur þurfa að vera orðnir 18 ára.

Umsækjendur þurfa að ljúka námskeiði í skyndihjálp og geta standaðist sundpróf laugarvarða samkvæmt reglugerð um hollustuhætti á sund og baðstöðum. Námskeiðið er í maí 2022. Íþróttamiðstöðin á Blönduósi sér til þess að allir fái þetta námskeið og geti tekið hæfnispróf.
Umsóknarfrestur er til 20. desember nk.

Umsóknir til forstöðumanns Íþróttamiðstöðvarinnar á Blönduósi á netfangið robert@imb.is.
Allar nánari upplýsingar veitir Róbert í síma 455-4780.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga