Fréttir | 10. janúar 2022 - kl. 15:46
Kormákur/Hvöt fær liðstyrk

Sameiginlegt lið Kormáks og Hvatar heldur áfram að styrkja sig fyrir komandi átök í 3. deildinni í sumar. Skagfirski Húnvetningurinn Arnór Guðjónsson er kominn í liði en hann spilaði með Kormáki/Hvöt sumrin 2018 og 2019. Arnór er miðjumaður með næmt auga fyrir spili og fellur því vel inn í hópinn, að því er segir í tilkynningu frá meistaraflokki Kormáks/Hvatar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga