Fréttir | 10. janúar 2022 - kl. 15:50
Hönnunar- og prjónasamkeppni Prjónagleðinnar

Prjónagleðin verður haldin á Blönduósi 10. - 12. júní 2022 og að venju er blásið til hönnunar- og prjónasamkeppni af því tilefni. Að þessu sinni gengur samkeppnin út að hanna og prjóna lambhúshettu á fullorðinn. Þema keppninnar er huldufólk samtímans og ber að hafa það í huga við hönnunina, sem á að vera handprjónuð úr íslenskri ull.

Óskað er eftir því að sagan á bak við hugmynd og hönnun fylgi með þegar verkinu er skilað inn í keppnina.

Dómnefnd velur þrjú efstu sætin og verða úrslit kynnt á Prjónagleðinni 2022, þar sem verðlaun verða afhent. Styrktaraðilar keppninnar eru Ístex, Tundra, VatnsnesYarn og Rúnalist sem gefa glæsileg verðlaun.

Lambhúshetturnar sem taka þátt í keppninni verða til sýnis á meðan á hátíðinni stendur.

Nánari upplýsingar veitir Svanhildur Pálsdóttir svana@textilmidstod.is og þær má einnig finna á www.textilmidstod.is.

-Fréttatilkynning-

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga