Fréttir | 11. janúar 2022 - kl. 18:35
Biskup auglýsir eftir sóknarpresti í Þingeyraklaustursprestakalli, Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi

Biskup Íslands auglýsir eftir sóknarpresti í Þingeyraklaustursprestakalli, Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi. Á heimasíðu biskups eru auglýst fjögur störf til umsóknar en sagt frá því að það telst vera óvenjulegt þar sem gilt hefur ráðningarbann hjá Þjóðkirkjunni sem rann út þann 1. janúar sl.

Þingeyraklaustursprestakall samanstendur af fimm sóknum, Auðkúlusókn, Blönduóssókn, Svínavatnssókn, Undirfellssókn og Þingeyrasókn. Undanfarið hefur Sr. Bryndís Valbjarnardóttir, sóknarprestur á Skagaströnd, sinnt þessu starfi í afleysingum.

Í prestakallinu er íbúafjöldi um 1.350 manns, þar af eru 916 16 ára og eldri í þjóðkirkjunni og börn yngri en 16 ára eru 248. Prestarnir í Húnavatnssýslu skipta með sér vaktsíma utan hefðbundins vinnutíma, viku í senn.

Prestaköllin tvö Þingeyraklaustursprestakall og Skagastrandarprestakall eru samstarfssvæði og fylgja því starfinu viðbótarskyldur við önnur prestaköll í prófastsdæminu, önnur prófastsdæmi, sem og við Þjóðkirkjuna, Biskupsstofu og önnur kirkjuleg stjórnvöld.

Umsóknafrestur er til miðnættis 24. janúar n.k. og nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu kirkjunnar.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga