Fréttir | 11. janúar 2022 - kl. 18:38
Gildandi takmarkanir innanlands framlengdar

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja óbreyttar gildandi takmarkanir á samkomum innanlands til og með 2. febrúar næstkomandi. Ákvörðunin byggist á tillögum sóttvarnalæknis sem telur nauðsynlegt að takmarka áfram sem mest útbreiðslu Covid-19 til að verja heilbrigðiskerfið. Samhliða nýrri reglugerð um samkomutakmarkanir hefur ráðherra til hagræðis sett sérstaka reglugerð um skólastarf, líkt og gert hefur verið á fyrri stigum faraldursins.

Í meðfylgjandi minnisblaði sóttvarnalæknis, dags. 5. janúar síðastliðinn koma einnig fram tillögur hans um breytingar á sóttkví sem þegar hafa komið til framkvæmda, sbr. tilkynning ráðuneytisins frá 7. janúar síðastliðnum. Jafnframt fylgir hér minnisblað landlæknis og sóttvarnalæknis, dags. 10. janúar, um stöðu heilbrigðiskerfisins á Íslandi og þróun faraldursins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga