Hvammstangahöfn
Hvammstangahöfn
Fréttir | 14. janúar 2022 - kl. 16:14
Reglur um úthlutun 70 þorskígildistonna byggðakvóta

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið úthlutaði nýverið byggðakvóta vegna fiskveiðiársins 2021/2022 og fékk Hvammstangi 70 þorskígildistonna kvóta. Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur samþykkt hvaða reglur gilda um úthlutun kvótans.

Ákvæði reglugerðar númer 995/2021 gilda um úthlutun byggðakvóta Hvammstanga með eftirfarandi viðauka/breytingum:

a. 65% af byggðakvóta Húnaþings vestra verður skipt milli þeirra fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga og fengið hafa úthlutun samkvæmt reglugerð nr. 731/2020 vegna aflabrests á rækju í innanverðum Húnaflóa og uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 728/2020, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2020/2021. Við skiptingu þessa 65% byggðakvóta Húnaþings vestra, til ofangreindra skipa, skal miða við meðaltal landaðs botnfiskafla í þorskígildum talið, í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í Hvammstangahöfn, síðastliðin þrjú fiskveiðiár. Viðmiðunarárin eru 3 síðustu fiskveiðiár, nú 2018/2019, 2019/2020 og 2020/2021.

b. 35% af byggðakvóta Húnaþings vestra verður skipt milli þeirra fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga og uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 995/2021, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2021/2022, miðað við meðaltal landaðs botnfiskafla, í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í Hvammstangahöfn síðastliðin þrjú fiskveiðiár, í þorskígildum talið. Viðmiðunarárin eru 3 síðustu fiskveiðiár, nú 2018/2019, 2019/2020 og 2020/2021.

b) Skip eiga rétt til úthlutunar úr báðum pottum samkvæmt a- og b-lið, að uppfylltum skilyrðum.

c) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðarlagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. september 2021 til 31. ágúst 2022.

Rökstuðningur/viðaukar/breytingar frá reglugerð nr. 995/2021 er felast í tillögum Húnaþings vestra eru byggð á eftirfarandi:

Rökstuðningur sveitarstjórnar er sá að í byggðarlaginu er engin bolfiskvinnsla.

Tengd frétt:

239 tonna byggðakvóti í Húnaþing

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga