Tilkynningar | 16. janúar 2022 - kl. 19:10
Frá Félags- og tómstundarstarfi Blönduóss

Félags- og tómstundarstarfið á Þverbraut 1 á Blönduósi er opið á mánudögum og fimmtudögum frá klukkan 13:30-16:30. Fyrir handavinnu. Því miður getum við ekki eins og staðan er boðið upp á spilamennsku. Opnun fyrir spil verður endurskoðuð við breyttar reglur 2. febrúar.

Muna þarf að huga vel að sóttvörnum. Erum með grímur og spritt.
Erum nú á nýju ári að hvetja ykkur til að vinna upp garn (afganga) ókláruð verkefni.
Erum með fullt af hugmyndum fyrir afgangana ykkar til að nýta þá .

Við leitum til ykkar um hvort þið eigið garn dokkur eða hespur sem má vinda upp.
Garn dokkur eru undnar upp en við endur vindum þær þetta mega líka vera hnyklar.

Hlökkum til að sjá ykkur Sísa,Síssú og Vallý.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga