Frá Hvammstanga. Ljósm: hunathing.is
Frá Hvammstanga. Ljósm: hunathing.is
Fréttir | 17. janúar 2022 - kl. 14:07
Húsnæðisáætlun Húnaþings vestra

Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á fundi sínum 13. janúar síðastliðinn húsnæðisáætlun sveitarfélagsins. Reglur kveða á um að sveitarfélög skuli gera slíkar áætlanir til fjögurra ára í senn og skoða árlega hvort þörf sé á endurskoðun þeirra með tilliti til þróunar og breytinga. Hlutverk húsnæðisáætlana er að draga fram mynd af því hver staða húsnæðismála er í hverju sveitarfélagi fyrir sig, greina framboð og eftirspurn eftir margvíslegum húsnæðisformum og setja fram áætlun um hvernig sveitarfélagið ætlar að mæta húsnæðisþörf,  bæði til skemmri og lengri tíma.

Á vef Húnaþings vestra kemur fram að mikið hafi verið byggt af íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu síðustu ár en þrátt fyrir það sé mikil uppsöfnuð þörf er varðar framboð af íbúðarhúsnæði. Lóðaframboð í sveitarfélaginu sé gott og mörgum lóðum hafi verið úthlutað á síðustu árum.

Einnig kemur fram að vegna mikillar eftirspurnar eftir íbúðarhúsnæði hafi sveitarstjórn samþykkt  tímabundna heimild til niðurfellingar gatnagerðagjalda af níu lóðum á Hvammstanga og tveimur á Laugarbakka. Þá hafi sveitarstjórn verið í samstarfi við leigufélagið Bríeti og á síðasta ári hafi verið auglýst eftir byggingaraðilum til samstarfs um byggingu íbúðarhúsnæðis á Hvammstanga. 

Húsnæðisáætlun Húnaþings vestra má sjá hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga