Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 20. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 16:04 0 0°C
Laxárdalsh. 16:04 0 0°C
Vatnsskarð 16:04 0 0°C
Þverárfjall 16:04 0 0°C
Kjalarnes 16:04 0 0°C
Hafnarfjall 16:04 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
Húnavellir. Mynd: hunvetningur.is
Húnavellir. Mynd: hunvetningur.is
Fréttir | 24. janúar 2022 - kl. 10:45
Skýrslu starfshóps um stofnun umhverfisakademíu að Húnavöllum

Á fundi samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaganna Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps í síðustu viku var lagt fram skilabréf og skýrsla starfshóps um stofnun umhverfisakademíu á Húnavöllum, sem er þróunarverkefni sem unnið hefur verið að samhliða viðræðum um sameiningu sveitarfélaganna. Starfshópurinn telur hugmynd um umhverfisakademíu fýsilegan kost fyrir sameinað sveitarfélag til að ráðast í og leggur til að stefnt verði að upphafi skólastarfs haustið 2023.

Í skýrslunni segir m.a.: „Hugmyndin byggir í grunninn á því mati að það sé í raun enginn skóli á Íslandi sem marki sér þá sérstöðu að vera umhverfisfræðsluskóli þótt víða sé hægt að finna greinar á sviði umhverfisfræða í námskrám háskólanna. Að því leyti sé þarna sennilega eyða í menntakerfinu sem hægt væri að fylla í með sérstökum umhverfisskóla. Einnig var horft til þess að til staðar er góð aðstaða á Húnavöllum því húsnæði þar er orðið of stórt fyrir núverandi skólahald og stefnt að því að grunnskólinn á Húnavöllum og Blönduskóli verði sameinaðir.“

Það er mat starfshópsins að húsnæði að Húnavöllum geti hentað mjög vel fyrir starfsemi lýðskóla  með samnýtingu við bæði Hótel Húna og verkefnið „Sól í sveit“, sem lýtur að uppsetningu aðstöðu til námskeiðahald tengdu textíl. Starfshópurinn leggur til að stofnað verði einkahlutafélag um rekstur umhverfisakademíunnar í eigu Húnavatnshrepps og Blönduósbæjar, eða sameinaðs sveitarfélags ef af sameiningu verður, og að stjórn verði skipuð í félaginu sem hafi það hlutverk að vera skólastjórn. Stjórnin fái einnig það verkefni að stilla upp skipulagsskrá fyrir skólann, tryggja fjárhagslegar forsendur skólastarfsins og ráða skólastjóra til að leiða starfið og uppbyggingu skólans.

Í skýrslunni er lagt til að gerðir verði samningar við sveitarfélagið um afnot af skólahúsnæði og við Hótel Húna um gistirými fyrir nemendur og aðra aðstöðu utan skólastarfsins. Einnig verði gengið til samninga við helstu samstarfsaðila þ.m.t. menntamálastofnun um staðfestingu á starfsemi og menntamálaráðuneyti um árlega fjármögnun umhverfisakademíunnar.

Í starfshópnum sátu Einar K. Jónsson, formaður, Magdalena Berglind Björnsdóttir, Unnur Valbor g Hilmarsdóttir og Magnús B. Jónsson.

Skýrslu starfshóps um stofnun umhverfisakademíu að Húnavöllum má lesa hér.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið