Fréttir | 25. janúar 2022 - kl. 09:21
Riða greindist í skimunarsýni frá bænum Sporði á Vatnsnesi

Fyrir skömmu barst Matvælastofnun tilkynning frá Tilraunastöð HÍ að Keldum um að sýni frá bænum Sporði á Vatnsnesi hafi reynst jákvætt m.t.t. riðu. Sauðfjárbúskapur var aflagður á bænum í haust og þarf því ekki að fara í niðurskurð á fé, heldur aðeins að þrífa og sótthreinsa útihús og umhverfi þeirra.

Á vef MAST kemur fram að á hverju hausti sé tekinn fjöldi sýna úr fé sem sent er til slátrunar og þau rannsökuð með tilliti til riðu. „Jákvæð niðurstaða úr rannsókn á einu slíku sýni frá í haust barst nýlega. Um var að ræða sýni úr kind frá bænum Sporði á Vatnsnesi. Þegar Matvælastofnun hafði samband við bóndann kom í ljós að hann hætti sauðfjárbúskap í haust og því ekkert fé lengur á bænum. Í þessu tilviki er því ekki um niðurskurð á fé að ræða en Matvælastofnun mun framkvæma faraldsfræðilega rannsókn og hefur lagt til við ráðherra að hreinsun útihúsa og umhverfis verði fyrirskipuð,“ að því er segir á vef MAST.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga