Fréttir | 25. janúar 2022 - kl. 12:54
Slakað á reglum um sóttkví

Einstaklingum sem eru útsettir fyrir COVID-19 smiti utan heimilis eða dvalarstaðar síns verður ekki lengur skylt að fara í sóttkví en þurfa þess í stað að viðhafa smitgát. Sóttkví verður áfram beitt gagnvart þeim sem hafa verið útsettir fyrir smiti innan heimilis eða dvalarstaðar en þríbólusettir sem útsettir eru á heimili geta verið í smitgát sem lýkur með sýnatöku. Börn á leik- og grunnskólaaldri verða enn fremur undanþegin smitgát. Breytingarnar taka gildi á miðnætti.

Breytingar á reglum um sóttkví eru gerðar í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Í minnisblaði hans til heilbrigðisráðherra kemur fram að ómíkron-afbrigði kórónaveirunnar sé uppistaðan í þeim mikla fjölda smita sem nú greinast eða í rúmlega 90% tilvika, en delta-afbrigðið í tæplega 10%. Þannig sé  faraldurinn nú um margt frábrugðinn því sem verið hefur en ómíkron-afbrigðið er mun meira smitandi en delta-afbrigðið, veldur sjaldnar alvarlegum veikindum og sleppur frekar undan vernd bóluefna og fyrri smita.

Með þeirri breytingu sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið verður sóttkví og smitgát með eftirfarandi hætti:

Sóttkví verður fyrir þá sem eru útsettir á heimili.

  • Skilyrði sóttkvíar verða óbreytt, þ.e. aðskilnaður frá öðrum í fimm daga og PCR-próf til að losna.
  • Ef ekki er viðhafður fullur aðskilnaður frá smituðum á heimili lýkur sóttkví með PCR-prófi degi eftir að sá smitaði útskrifast, eins og verið hefur.
  • Þríbólusettir (smit telur sem ein bólusetning) á heimili fara þó í smitgát í stað sóttkvíar, sbr. að neðan, sem lýkur með PCR-prófi á fimmta degi.

Smitgát verður fyrir þá sem eru útsettir utan heimilis.

  • Í smitgát skal viðkomandi bera grímu í margmenni og þegar ekki verður hægt að viðhafa tveggja metra nándarreglu, úti sem inni. Forðast skal mannmarga staði og sleppa umgengni við viðkvæma einstaklinga.
  • Smitgát þarf að viðhafa í fimm daga og ekki þarf sýnatöku til að losna, sbr. þó þríbólusetta sem eru útsettir á heimili.
  • Börn á leik- og grunnskólaaldri eru undanþegin smitgát í þessum tilfellum en þurfa að vera í sóttkví ef smit er á heimili.

Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga