Pistlar | 13. maí 2022 - kl. 06:06
Er ekki kominn tími á framfarir
Eftir Halldór Skagfjörð Jónsson

Korter í kosningar langar mig að skrifa nokkur orð um það mál sem mig varðar mikið. Það mál er fjallskil í minni fjallskiladeild. Lengi hef ég verið ósáttur með smalamennsku, tímasetningar og fleira. Óánægjan er hávær í umræddri fjallskiladeild. Víðar en á mínu heimili. Bændur vilja seinka göngum, afrétturinn er ekki smalaður í þeirri röð sem margir vilja, kallað er eftir breytingum en ekkert gerist, ár hvert.

Í fjallskiladeild hafa setið síðustu 4 ár 3 ágætar manneskjur og kann ég þeim þakkir fyrir sín störf. Það sem bændur hér vilja eru fundir með bændum  eins og tíðkast annarsstaðar. Ég veit fyrir víst að í öðrum fjallskiladeildum eru haldnir fundir sem bændur mæta á og segja sínar skoðanir um málefni er þá varða. Í Blönduósbæ er haldinn einn fundur á ári hjá fjallskiladeild. Einn fundur??? Finnst fólki það nóg?? Þetta er þriggja manna fundur! Aldrei er haldinn fundur fyrir bændur eða sem þeir eru boðnir á. Flestir hafa skoðanir og vilja koma þeim á framfæri á svona fundum. Er ekki rétt að hrista upp í þessu, gera þetta af áhuga og leyfa þeim sem vilja að hafa áhrif á málin og fá að segja sínar skoðanir annars staðar en við eldhúsborðið.

Ég býð krafta mína fram, sér í lagi til að fá að hafa áhrif á þessa hluti. Er ekki kominn tími á framfarir í fjallskiladeildum og hleypa ungu og nýju fólki að borðinu?

Er ekki bara best að kjósa Framsókn og framfarasinna?

Setjum X við B á laugardaginn.

Halldór Skagfjörð Jónsson

Bóndi, Fagranesi Langadal

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga