Tilkynningar | 13. maí 2022 - kl. 10:19
Lengri opnunartíma utankjörfundaratkvæðagreiðslu
Frá sýslumanninum á Norðurlandi vestra

Laugardaginn 14. maí 2022, kjördag, verður opið hjá Sýslumanninum á Norðurlandi vestra fyrir utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna sveitarstjórnarkosninga sem hér segir:

  • Blönduósi, aðalskrifstofu, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, frá kl. 14:00-17:00
  • Sauðárkróki, sýsluskrifstofu, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, frá kl. 14:00-17:00

Vakin er athygli kjósenda á að kosning utan kjörfundar á kjördag er fyrst og fremst ætluð þeim sem ekki eiga þess kost að kjósa á kjörfundi í sinni kjördeild þann daginn vegna fjarlægðar.

Kjósendur, með lögheimili utan umdæmis Sýslumannsins á Norðurlandi vestra, þurfa jafnframt sjálfir að koma atkvæði sínu til kjördeildar sinnar fyrir lokun kjörfundar.

Kjósendur skulu framvísa gildum persónuskilríkjum við kosninguna (ökuskírteini, vegabréfi eða nafnskírteini).

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga