Guðlaugur Þór ásamt fulltrúum frá SSNV, SSNE, Eimi og Norðurátt. Mynd: stjornarradid.is
Guðlaugur Þór ásamt fulltrúum frá SSNV, SSNE, Eimi og Norðurátt. Mynd: stjornarradid.is
Fréttir | 13. maí 2022 - kl. 19:12
Stuðningur við samstarfsverkefni Norðanáttar

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra, undirritaði í dag samstarfsyfirlýsingu um verkefni sem styður við nýsköpun með áherslu á loftslagsmál og hringrásarhagkerfið í tengslum við sóknaráætlanir sveitarfélaga.

Með undirritun sinni lýsa umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytið, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV), Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) og Eimur þeim vilja sínum að  stuðla, í gegnum Norðanátt, sameiginlega að nýsköpun á Norðurlandi með áherslu á loftslagsmál og hringrásarhagkerfið.

Samstarfsverkefnið Norðanátt er nýsköpunarhreyfing sem miðar að því að skapa kraftmikið umhverfi á Norðurlandi fyrir frumkvöðla og fyrirtæki. Norðanátt vinnur þvert á helstu stofnanir samfélagsins og sækir styrk sinn til sveitarfélaga, atvinnulífsins, frumkvöðla og öflugs stuðningsumhverfis frumkvöðla á höfuðborgarsvæðinu.

Ráðuneytið mun styrkja verkefnið um 20 milljónir króna.

„Loftslagsmálin eru ein stærsta áskorun sem Ísland og heimurinn allur stendur frammi fyrir. Hringrásarhagkerfið er mikilvægur liður í lausn á þeim vanda og skiptir nýsköpun, þátttaka samfélags og atvinnulífs miklu máli. Þar má enginn verða útundan og mikilvægt að allir landshlutar taki þátt. Þess vegna er ánægjulegt að vera með í þessu góða samstarfi,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga