Fréttir | 14. maí 2022 - kl. 22:34
Talning atkvæða í Skagabyggð er lokið en þar fór fram óbundin kosning og því engir framboðslistar heldur voru allir íbúar í framboði. Magnús Jóhann Björnsson fékk flest atkvæði eða 32, Kristján S. Kristjánsson fékk 20, Vignir Ásmundur Sveinsson fékk 19, Bjarney Ragnhildur Jónsdóttir 19 og Erla Jónsdóttir 15.