Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Miðvikudagur, 24. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 18:12 0 0°C
Laxárdalsh. 18:12 0 0°C
Vatnsskarð 18:12 0 0°C
Þverárfjall 18:12 0 0°C
Kjalarnes 18:12 0 0°C
Hafnarfjall 18:12 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | Tilkynningar | 16. maí 2022 - kl. 07:15
Fréttabréf Textílmiðstöðvarinnar
Frá Textílsmiðstöð Íslands

Bráðum er ár liðið frá því að við náðum þeim mikilvæga áfanga að opna TextílLab á Blönduósi, fyrstu stafrænu textílsmiðjuna á Íslandi. Gaman er að segja frá TextílLabinu og því helsta sem er á döfinni hjá okkur!

TextílLab (Þverbraut 1) er opið á miðvikudögum (13:00 - 20:00) og eftir samkomulagi. Á heimasíðu okkar eru góðar upplýsingar um TextílLab. Á undanförnum mánuðum höfum við tekið á móti og kennt nemendum úr grunnskólum, nemendahópum frá Listaháskóla Íslands og Myndlistaskólanum í Reykjavík, kennara og nemendum úr Verkmenntaskólanum á Akureyri (nú síðast þann 6. maí), starfsfólki ferðamáladeildar Háskólans á Hólum og ýmsum frumkvöðlum sem hafa leitað til okkar. Í apríl og byrjun maí voru kenndar 6 þverfaglegar vinnustofur (m.a. um líftextíll, bakteríulitun og CLO-3D hugbúnaðinn) í samvinnu við Shemakes sem er alþjóðleg verkefni styrkt af ESB sem Textílmiðstöðin tekur þátt í, þátttakendum að kostnaðarlausu.

Annað stórt alþjóðleg samstarfsverkefni sem Textílmiðstöðin tekur þátt í er H2020 rannsóknarverkefnið CENTRINNO. Í verkefninu er skoðað hvernig hægt er að nota menningararfinn sem innblástur til nýsköpunar og blása lífi í fyrrum blómleg borgarhverfi og landshluta. Teymið frá Íslandi - Elsa Arnardóttir, Katharina Schneider, Margrét Katrín Guttormsdóttir og sérfræðingar frá Háskóla Íslands - mun mæta á vinnufund sem verður haldinn í Barcelona nú í vikunni. Frekari upplýsingar um CENTRINNO og verkefni á Blönduósi eru á Youtube (CENTRINNO EU) og vefsíðu verkefnisins: www.centrinno.eu. Endilega kíkið á vídeóið okkar!

Ós Textíllistamiðstöð er að rétta úr kútnum eftir covid. Stundum er spurt hvað listamiðstöðvar gera fyrir nærsamfélagið? Svarið er að verðmæti listamiðstöðva er margþætt. Lista- og fræðafólk sem dvelur hjá okkur á Blönduósi (og það sama gildir um listamiðstöðina NES á Skagaströnd) eru einnig ferðamenn sem dvelja á staðnum í lágmark mánuð og nýta sér alla þá þjónustu sem er í boði. Þau koma til okkar og ferðast um svæðið með bílaleigubílum og Strætó. Okkar fólk er tilbúið að kaupa allt íslensk garn og ull sem er í boði, versla í matvörubúðinni og fá til sín ættingja og vini sem bóka gistingu í bænum. Þau nýta sér líkamsræktina og sundlaugina á Blönduósi og borða á kaffihúsum bæjarins. Í bæ með 940 íbúa skiptir þetta miklu máli.

Listafólkið veitir okkur innblástur og tengir okkur sem vinnum í Textílmiðstöðinni við umheiminn. Við fáum til okkar skapandi og reynslumikla sérfræðinga á sviði textíls (fatahönnuði, kennara, líffræðinga, vöruhönnuði …) sem eru ávallt tilbúin að deila þekkingu sinni og reynslu með okkur og nærsamfélaginu. Þau standa fyrir mánaðarlegum sýningum, opnum húsum og hafa haldið fyrirlestra og vinnustofur í grunn-, framhalds- og háskólum okkar. Sterk tengsl myndast við Blönduós, Norðurland vestra og Ísland almennt.

Upplifuninni af dvölinni er gjarnan miðlað á samfélagsmiðlum; Instagram Textílmiðstöðvarinnar hefur nú fleiri en 3500 fylgjendur, sem er mikið auglýsing fyrir svæðið. Jafnframt er árlega gefinn út ársrit með myndum og textum frá listafólkinu, Ós Residency Catalog (má nálgast á netinu), sem er afar áhugavert að skoða.

Framundan er margt:

  • Prjónagleði verður haldinn á Blönduósi þann 10 - 12 júní í umsjón Svanhildar Pálsdóttur. Hægt er að kaupa miða og bóka námskeið í vefverslun Textílmiðstöðvarinnar.
  • Nemendur frá Háskólanum Concordia í Montreal koma í júní í vettvangsnám og munu dvelja allan mánuðinn.
  • Vinnufundur í NORA verkefninu ,,Wool Walks and Workshops” unnið í samstarfi við aðila frá Noregi, Færeyjum, Grændlandi og Skotlandi verður haldinn á Grænlandi í júlí samhlíðar North Atlantic Native Sheep and Wool Conference. Þar verða verkefnið og Textílmiðstöðin einnig kynnt.
  • Textílmiðstöð Íslands er orðin fullgildur kennslustaður hjá Fabricademy og mun kennsla þverfaglegs náms í samstarfi við Textile Academy hefjast á Blönduósi frá og með september 2022.

Á undanförnum mánuðum höfum við gjarnan nýtt okkur rafræna miðla til að streyma viðburðum og fyrirlestrum á okkar vegum eins og ,,Ull, ferðaþjónusta og nýsköpun”, örráðstefnan sem haldinn var þann 20. apríl. Listafólkið hefur verið með ,,yfirtöku” (takeover) á Instagram sem gefur skemmtileg innsýn í daglegt líf í Textíllistamiðstöðinni og munum við halda því áfram.

Endilega skoðið heimasíðuna okkar og samfélagsmiðla til að fylgjast með eða hafið samband ef spurningar vakna!

Starfsfólk Textílmiðstöðvarinnar

Maí 2022

 

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið