Fréttir | 09. júní 2022 - kl. 21:28
Pétur Pan í Þjóðleikhúsinu

Um helgina munu um 30 manns úr Húnaþingi vestra halda áleiðis til Reykjavíkur, nánar tiltekið í Þjóðleikhúsið en síðustu daga hefur hópurinn verið við æfingar í Félagsheimilinu Hvammstanga á  barnaleikritinu Pétri Pan sem sýna á í Kassanum í Þjóðleikhúsinu á sunnudaginn.

Ferðin hefst á vettvangsferð um Þjóðleikhúsið á föstudagskvöld og svo verður byrjað snemma á laugardagsmorgun að setja upp leikmynd í Kassanum og æfingar í framhaldi af því. 

Sýningar verða kl. 14:00 og kl. 17:00 sunnudaginn 12. júní.  

Þetta verður án efa skemmtilegur tími fyrir hópinn og þá sérstaklega þann krakkahóp sem að tekur þátt í verkefninu.

Enn eru miðar lausir á sýningarnar en þeim fer ört fækkandi.  Hægt er að kaupa miða á https://leikhusid.is/syningar/petur-pan/

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga