Fréttir | 21. júní 2022 - kl. 13:53
Opna Fiskmarkaðsmótið á sunnudaginn

Opna Fiskmarkaðsmótið í golfi, sem jafnframt er minningarmót um Karl Berndsen, verður haldið á Háagerðisvelli á Skagaströnd sunnudaginn 26. júní. Ræst verður út á öllum brautum klukkan 10. Fyrirkomulag mótsins er punktakeppni með forgjöf, einn flokkur. Nándarverðlaun verða á par þrjú brautum. Skráning er á golf.is fyrir klukkan 19 laugardaginn 25. júní og er keppnisgjald 4.000 krónur.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga