Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 28. mars 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Mars 2024
SMÞMFL
252627282912
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31123456
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 20:02 0 0°C
Laxárdalsh. 20:02 0 0°C
Vatnsskarð 20:02 0 0°C
Þverárfjall 20:02 0 0°C
Kjalarnes 20:02 0 0°C
Hafnarfjall 20:02 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
22. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
17. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
15. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
11. mars 2024
Blönduskóli
Blönduskóli
Fréttir | 22. júní 2022 - kl. 14:07
Þórhalla ráðin skólastjóri í Húnabyggð

Þórhalla Guðbjartsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri grunnskóla Húnabyggðar. Þórhalla var áður skólastjóri Blönduskóla en var sagt upp, líkt og öðrum stjórnendum grunn- og leikskóla í Blönduósbæ og Húnavatnshreppi í kjölfar sameiningar sveitarfélaganna. Í apríl var auglýst eftir skólastjórnendum í sameinuðu sveitarfélagi og var starf skólastjóra, aðstoðarskólastjóra, leikskólastjóra og aðstoðarleikskólastjóra auglýst.

Á sveitarstjórnarfundi í gær staðfesti sveitarstjórn Húnabyggðar ráðningu Þórhöllu í starf skólastjóra en frestaði staðfestingu á ráðningu aðstoðarskólastjóra þar til gengið hafi verið frá ráðningunni við Þórhöllu og þá verði henni falið að ganga frá ráðningu aðstoðarskólastjóra með hliðsjón af gögnum ráðningafyrirtækisins Hagvangs. Þá ákvað sveitarstjórn að auglýsa stöður leikskólastjóra og aðstoðarleikskólastjóra aftur.

Deilt um umboð meirihlutans
Í fundargerð sveitarstjórnar frá því í gær lét H-listinn, sem situr í minnihluta í sveitarstjórn, færa til bókar áminningu til meirihlutans um að vanda vinnubrögð í hvívetna þegar unnið væri að ráðningu starfsfólks til sveitarfélagsins. Taldi minnihlutinn að fulltrúar meirihlutans, sem tóku starfsviðtöl við umsækjendur, hafi skort umboð til þess þar sem ekki hafi verið búið að halda fyrsta fund sveitarstjórnar Húnabyggðar og skipa embættismenn, né kjósa í nefndir og ráð. Meirihlutinn vísaði þessu á bug og benti á að ný sveitarstjórn hefði tekið til starfa 15 dögum eftir kjördag og því hafi fulltrúar meirihlutans sem viðstaddir voru viðtölin verið í umboði meirihluta sveitarstjórnar.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið