Greta Clough og Eliza Reid. Mynd: byggdastofnun.is
Greta Clough og Eliza Reid. Mynd: byggdastofnun.is
Fréttir | 22. júní 2022 - kl. 14:18
Móttaka til heiðurs Brúðuleikhúsinu Handbendi

Móttaka var haldin til heiðurs handhafa Eyrarrósarinnar 2021, Brúðuleikhúsinu Handbendi á Hvammstanga, á Listahátíð í Reykjavík í Iðnó síðastliðinn fimmtudag. Handbendi var stofnað árið 2016 af Gretu Clough sem jafnframt er leikstjóri, brúðuleikari og listrænn stjórnandi brúðuleikhússins.

Eyrarrósin hefur verið veitt frá árinu 2005 en það eru Byggðastofnun, Listahátíð í Reykjavík og Icelandair sem staðið hafa í sameiningu að viðurkenningunni, sem veitt er framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Verndari Eyrarrósarinnar er frú Eliza Reid forsetafrú og heiðraði hún samkomuna með nærveru sinni. Markmið Eyrarrósarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði lista og menningar.

Sagt er frá þessu á vef Byggðastofnunar.

Vigdís Jakobsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík, þakkaði Gretu hennar framlag til menningar og lista og hvatti hana áfram til dáða. Fram kom í máli Vígdísar að við endurnýjun samnings samstarfsaðila var fyrirkomulag Eyrarrósarinnar endurskoðað sem var m.a. fólgið í því að bjóða handhafa Eyrarrósarinnar beina aðkomu að Listahátíð í Reykjavík árið eftir að verðlaunahafar hljóta viðurkenninguna.

Af þessu tilefni sýndi Handbendi brúðuleikhússýninguna Heimferð, Moetivi Caravan á Listahátíð í Reykjavík 2022. Sýningin er einstæð ör-leikhúsupplifun í hjólhýsi fyrir lítinn áhorfendahóp í senn. Í þessari heillandi sýningu fyrir alla aldurshópa er notast við hreyfimyndir, tónlist, leiklist, brúðulist, hljóð og mynd til að skoða muninn á hreyfanlegu heimili sem marga dreymir um og þeirri upplifun að búa á slíku heimili þvert gegn eigin vilja, í krísuástandi. Áhorfendum er fylgt í gegnum opna sögu sem þeir móta sjálfir um leið og þeir fá að gægjast inn í litla heima, einkalíf annarra, og kanna fjölda örstuttra augnablika sem flytja okkur aftur heim.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga