Fréttir | 23. júní 2022 - kl. 11:29
Umsóknarfrestur um styrk úr Húnasjóði

Húnaþing vestra auglýsir eftir umsóknum um styrk úr Húnasjóði vegna ársins 2022 og er sótt um með rafrænum hætti á vef sveitarfélagsins. Umsóknum skal skilað í síðasta lagi 8. júlí næstkomandi. Úthlutunarreglur sjóðsins má einnig finna á vef Húnaþings vestra.

Húnasjóð stofnuðu hjónin Ásgeir Magnússon og Unnur Ásmundsdóttir til þess að minnast starfs Alþýðuskóla Húnvetninga, sem Ásgeir stofnaði og rak á Hvammstanga árin 1913-1920. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að endurmenntun og fagmenntun í Húnaþingi vestra.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga