Tilkynningar | 23. júní 2022 - kl. 20:28
Uppfærðar sóttvarnarreglur á HSN 23. júní 2022
Tilkynning frá HSN

Heilsugæsla

Grímuskylda er hjá skjólstæðingum með einkenni öndunarfærasýkinga eða grun um Covid. Hvetjum eldri skjólstæðinga og þá sem eru með undirliggjandi sjúkdóma að bera grímu við komu á heilsugæslu.

Sjúkra- og hjúkrunardeildir HSN:

  • Tveir gestir geta heimsótt hvern skjólstæðing á dag.
  • Heimsóknargestir þurfa að bera grímu.
  • Heimsóknargestir eru beðnir um að dvelja ekki í sameiginlegum rýmum.
  • Grímuskylda er hjá utanaðkomandi einstaklingum sem veita persónulega þjónusta við íbúa og dægrastyttingu (t.d. hársnyrtifólk, fótaaðgerðarfræðingar, hljóðfæraleikarar).
  • Heimsóknargerstir skulu gæta vel að persónubundnum sóttvörnum og koma ekki í heimsókn ef þeir eru með einkenni sem gætu bent til Covid.

Framkvæmdastjórn HSN og sóttvarnarlæknar

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga