Tilkynningar | 30. ágúst 2022 - kl. 21:01
Söfnun fyrir fjölskyldu Evu Hrundar Pétursdóttur, sem lést þann 21. ágúst 2022

Í ljósi þeirra hörmulegu atburða sem áttu sér stað á Blönduósi þann 21. ágúst síðastliðinn hefur verið opnaður styrktarreikningur til stuðnings eiginmanni hennar og börnum svo fjölskyldan þurfi ekki að hafa fjárhagsáhyggjur á þessum erfiða tíma.

Við biðjum ykkur að senda hlýjar hugsanir og kærleik til fjölskyldunnar sem á um sárt að binda og kærar þakkir til allra sem sjáið ykkur fært að styrkja þau.

Fyrir þá sem vilja leggja söfnuninni lið þá er reikningsnúmerið 0307-26-004701, kt. 470169-1689 (Blönduóskirkja).

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga