Ljósm: Róbert Daníel Jónsson.
Ljósm: Róbert Daníel Jónsson.
Fréttir | 22. september 2022 - kl. 12:04
Lestrarömmur og afar í Grunnskóla Húnabyggðar

Grunnskóli Húnabyggðar hefur verið svo lánsamur að frábærir einstaklingar hafa komið í skólann og hlustað á  börnin lesa fyrir sig og nú þegar Covid hefur að mestu gengið yfir, langar okkur að endurvekja þetta frábæra verkefni.

Það er þannig að „ömmur og afar“ koma í skólann á ákveðnum tíma/um og hlusta á börn lesa. Við leitum því til ykkar – er einhver áhugasamur þarna úti sem á lausan klukkutíma á viku – eða fleiri? Athugið að þetta þurfa ekki að vera eiginlegar ömmur eða afar heldur einungis áhugasamir einstaklingar sem bjóða aðstoð sína.

Endilega hafið samband við Heiðbjörtu ritara í síma 455-4750 eða sendið tölvupóst á blonduskoli@blonduskoli.is.

 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga