Fréttir | 26. september 2022 - kl. 10:07
Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra auglýsir

Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna ársins 2023:

Atvinnuþróunar- og nýsköpunarstyrkir

Verkefnastyrkir á menningarsviði

Stofn- og rekstrarstyrkir á menningarsviði

 

Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 þriðjudaginn 1. nóv. nk.

 

Á heimasíðu SSNV http://www.ssnv.is/is/uppbyggingarsjodur er að finna

úthlutunarreglur, matsblað og ýmsar leiðbeiningar við gerð umsókna.

Góð umsókn eykur möguleika umsækjenda á að fá styrk úr sjóðum svo mikilvægt er að vanda vel til verka. Starfsmenn SSNV eru ætíð reiðubúnir til aðstoðar.       

Rafrænn kynningarfundur verður haldinn á zoom mánudaginn 10. október kl. 12:00. Nánari upplýsingar um hann má finna á facebook síðu samtakanna.

Starfsmenn SSNV verða með vinnustofur/viðtalstíma þar sem boðið verður upp á einstaklingsaðstoð við gerð umsókna, veittar upplýsingar um styrkmöguleika, auk almennrar aðstoðar í tengslum við atvinnu- og menningarstarfsemi.

Vinnustofur/viðtalstímar verða sem hér segir:
Mánudagur 17. okt

Kl. 13-16 skrifstofa SSNV, Hvammstanga

Miðvikudagur 19. okt

Kl. 10-12 Hótel Varmahlíð

Kl. 10-12 Vesturfarasetrið. Hofsósi

Kl. 13-16 Skrifstofa SSNV, Sauðárkróki

Fimmtudagur 20. okt

kl. 10-12 skrifstofa SSNV, Skagaströnd

Kl. 13-16 Kvennaskólinn, Blönduósi

Athugið að nauðsynlegt er að skrá sig á vinnustofur. Ef tímasetning vinnustofanna hentar ekki er einnig hægt að bóka tíma með ráðgjafa á öðrum tíma til að fá aðstoð. Upplýsingar um ráðgjafa SSNV má finna á heimasíðu SSNV.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga