Fréttir | 27. september 2022 - kl. 07:56
Opið hús í Nesi listamiðstöð

Í dag verður opið hús í Nesi, listamiðstöðinni á Skagaströnd, að Fjörubraut 8, klukkan 16-18.

Tíu listamenn sem dvalið hafa í listamiðstöðinni að undanförnu bjóða alla velkomna í heimsókn. „Við erum með stórkostlegan hóp listamanna í þessum mánuði frá Ástralíu, Brasilíu, Danmörku, Frakklandi, Japan, Kóreu, Mexíkó og Bandaríkjunum. Kíktu í heimsókn eftir vinnu og skoðaðu þá sköpun sem átt hefur sér stað í listamiðstöðinni,“ segir í tilkynningu.

Listamennirnir eru:
Clare Weeks 
Marie Hougaard
Scott Probst
Nina Bebic
Yoshimi Saito 
Zoe Chronis 

Lucas Alengar, Renée Abaroa, Sarah Fuss og Seung Eon verða einnig með verk sín á viðburði í listamiðstöðinni í dag.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga