Frá Skagaströnd
Frá Skagaströnd
Fréttir | 29. september 2022 - kl. 12:59
Óskað er eftir verktaka í snjómokstur

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir á vef sínum eftir verktaka til að sinna snjómokstri innanbæjar. Verkið felst í að að sinna hreinsun á snjó og krapa á akstursleiðum innan þéttbýlismarka sveitarfélagsins og hafa tiltækan þann búnað og mannskap sem þarf til þeirra verka.

Hægt er að sækja gögn vegna verðkönnunar á skrifstofu sveitarfélagsins frá og með 3. október næstkomandi en skila þarf inn tilboðum vegna verðkönnunar fyrir 16 þann 7. október á skrifstofu sveitarfélagsins eða á netfangið sveitarstjori@skagastrond.is.

Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að semja við einn eða fleiri aðila, taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga