Fréttir | 03. október 2022 - kl. 14:30
Áhersla lögð á að fá fjárhagslega leiðréttingu

Í síðustu viku fór fram á Akureyri 37. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Á þinginu var samþykkt ályktun er varðar málefni fatlaðs fólks. Í henni segir m.a. að vanfjármögnun vegna þjónustu við fatlað fólk sé ein megin orsök fjárhagsvanda margra sveitarfélaga. Samband íslenskra sveitarfélaga leggi þunga áherslu á að fá fjárhagslega leiðréttingu frá ríkinu til að standa undir útgjöldum tengdum málaflokkinum. Enginn ávinningur sé af því fyrir ríkið og samfélagið í heild að sveitarfélög reki verkefni með halla.

Ályktunin í heild sinni:

„Fjárhagsstaða sveitarfélaga á Íslandi er grafalvarleg. Frá árinu 2019 hefur sveitarfélögum sem ekki uppfylla lágmarksviðmið um fjárhagslega sjálfbærni og eru undir eftirliti eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga fjölgað úr 12 í 30. Vanfjármögnun vegna þjónustu við fatlað fólk er ein megin orsök fjárhagsvanda margra sveitarfélaga. Ítarleg greining starfshóps félagsmálaráðherra um rekstur málaflokks fatlaðs fólks sýnir að hallinn á málaflokknum árið 2020 nam 8,9 milljörðum króna. Ætla má að hallinn nemi nú um 12 til 13 milljörðum króna.

Í yfirstandandi viðræðum sveitarfélaga og ríkisins leggur sambandið þunga áherslu á að fá fjárhagslega leiðréttingu frá ríkinu til að standa undir útgjöldum sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk, en gríðarlegur vöxtur útgjalda er einkum til kominn vegna aukinna krafna í löggjöf og reglum um hærra þjónustustig. Mikilvægt er að niðurstaða viðræðna liggi fyrir eigi síðar en 1. desember 2022 og að sveitarfélögin fái þá strax leiðréttingu. Jafnframt lýsir sambandið þeim vilja að teknar verði upp viðræður við ríkið um framtíðarfyrirkomulag og fjármögnun þjónustu við fatlað fólk.

Sveitarstjórnarlög kveða á um skyldu stjórnvalda að kostnaðarmeta þau verkefni sem sveitarfélögum er falið að sinna. Þjónusta við fatlað fólk er stórlega vanfjármögnuð af hálfu ríkisins og vegur að möguleikum sveitarfélaga til að ná sjálfbærni í rekstri. Enginn ávinningur er af því fyrir ríkið og samfélagið í heild að sveitarfélög reki verkefni með halla eða taki að sér ný verkefni sem ekki eru fjármögnuð.“

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga