Frá Blönduósi. Ljósmynd: Róbert Daníel Jónsson
Frá Blönduósi. Ljósmynd: Róbert Daníel Jónsson
Fréttir | 21. október 2022 - kl. 15:45
Ábyrgð á innheimtu meðlaga verði á Blönduósi

Áformað er að flytja starfsemi Innheimtustofnunar sveitarfélaga til ríkisins. Meginmarkmiðið er að einfalda verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga en hlutverk stofnunarinnar er að innheimta meðlög. Tillögur þessa efnis eru kynntar í greinargerð verkefnisstjórnar, sem Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra skipaði, á grundvelli viljayfirlýsingar ríkis og sveitarfélaga frá janúar 2021, til að skoða fýsileika á tilfærslu verkefna við innheimtu meðlaga frá sveitarfélögum til ríkisins. 

Megintillaga verkefnisstjórnarinnar er að færa ábyrgð á innheimtu meðlaga frá sveitarfélögunum til ríkisins. Verkefnastjórnin leggur til að horft verði til þess að innheimtumiðstöðin á Blönduósi, sem starfrækt er af Sýslumanninum á Norðurlandi vestra, taki við verkefninu og að sú útfærsla verði unnin í samvinnu við dómsmálaráðuneytið.

Verkefnisstjórnin telur mikilvægt að tryggja áfram starfsemi stofnunarinnar á Ísafirði og á höfuðborgarsvæðinu og að staðinn verði vörður um starfsöryggi og réttindi starfsfólks við yfirfærslu verkefnisins til ríkisins.

Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga