Lárus afhendir nýjum eigendum lyklana
Lárus afhendir nýjum eigendum lyklana
F.v.: Lárus, Auður, Óli, Hafþór (sonur Auðar og Óla) og Erlendur.
F.v.: Lárus, Auður, Óli, Hafþór (sonur Auðar og Óla) og Erlendur.
Úr nýja húsinu
Úr nýja húsinu
Fréttir | 23. október 2022 - kl. 21:34
Nýtt hús á Blönduósi afhent nýjum eigendum

Í gær fengu eigendur Smárabrautar 14 á Blönduósi afhenta lykla að nýja húsinu sínu. Byggingaraðili og seljandi er Blanda ehf. sem er í eigu Lárusar Jónssonar og nýju eigendurnir eru Auður Ingibjörg Hafþórsdóttir og Óli Guðlaugur Laursen. Húsið er fjögurra herbergja parhús og með bílskúr er það um 150 fermetrar að stærð. Bygging þess hófst í fyrra og var Lárus Jónsson byggingarstjóri, Páll Marteinsson byggingarmeistari og yfirsmiður var Erlendur Kolbeinsson.

Húsið er á steyptum sökkli og steyptri plötu, timburklætt með járni á þaki. Þá er gólfhitalögn í húsinu. Miðstöðin ehf. sá um pípulagnir, Einþór Skúlason á Laugarbakka um rafmagn og Stefán Pálsson um jarðvegsvinnu. Þá vann Bjarki Kristjánsson, smiður hjá Húsherja, einnig að byggingu hússins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga