Fréttir | 22. nóvember 2022 - kl. 10:14
Borðeyri er eitt fámennasta þorp landsins en þar búa um tíu íbúar. Í þættinum Sögur af landi sem hlusta má á vef Ríkisútvarpsins er flakkað um þetta litla þorp sem er eins og gluggi inn í liðna tíð. Rætt er meðal annars við sagnfræðinginn Vilhelm Vilhelmsson sem hefur kynnt sér náið sögu Borðeyrar og Kristínu Árnadóttur íbúa á Borðeyri um elsta hús plássins, svokallað Riishús.
Einnig er rætt við tónlistarkonuna Ásbjörgu Jónsdóttur en fjölskylda hennar hefur undanfarið unnið að endurbótum á einu hússanna á staðnum. Að lokum er flakkað um gistiheimilið Tangahús í fylgd með gestgjafanum Ingibjörgu Rósu Auðunsdóttur.