Tilkynningar | 22. nóvember 2022 - kl. 08:36
Kynning á námskeiðum og öðru á vegum æskulýðsnefndar hestamannafélagsins Neista

Miðvikudaginn 23. nóvember kl. 17:30 verður haldin kynning á námskeiðum og öðru sem æskulýðsnefnd hestamannafélagsins Neista mun standa fyrir í vetur.

Við hvetjum foreldra, börn og alla sem áhuga hafa á að kynna sér og móta vetrarstarfið að mæta, sérstaklega þá sem  ekki hafa tekið þátt á reiðnámskeiðum. Ekki er skylda að vera með reynslu í hestamennsku.

Við stefnum  á að gera fullt af skemmtilegum hlutum í vetur og bjóða upp á nokkrar nýjungar t.d. leiguhesta, æfingakeppni með leiðsögn, afmælissýning Neista, slútt með gistingu, prufudag í janúar (fyrir þau sem eru óákveðin) og skiptimarkað fyrir reiðföt.
Fleiri hugmyndir vel þegnar.

Það væri gaman að sjá sem flesta. Ef þið hafið áhuga en komist ekki á fundinn, endilega sendið okkur tölvupóst sonjasuska70@gmail.com svo að við getum sett ykkur á póstlistann.

Hittumst á kaffistofunni í Reiðhöllinni Arnargerði.
Léttar veitingar í boði.

Bestu kveðjur

Katharina og Sonja, æskulýðsnefnd

 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga