Velheppnaðir tónleikar á Hvammstanga. Myndir: Aldís Olga Jóhannesdóttir
Velheppnaðir tónleikar á Hvammstanga. Myndir: Aldís Olga Jóhannesdóttir
Fréttir | 24. nóvember 2022 - kl. 09:26
Húsfyllir á Hvammstanga hjá Rokkkórnum

Rokkkórin úr Húnaþingi vestra undir stjórn Ingibjargar Jónsdóttur hélt tónleika síðastliðinn laugardag fyrir fullu húsi í Félagsheimilinu Hvammstanga. Flutt voru níu lög ásamt fjögurra laga syrpu úr tónlistarverkinu Lifun eftir Trúbrot. Fimm manna hljómsveit sá um undirleik á tónleikunum sem að sögn áhorfenda heppnuðust mjög vel. 

Hér má sjá nokkrar myndir Aldísar Olgu Jóhannesdóttur frá tónleikunum:

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga