Fréttir | 25. nóvember 2022 - kl. 10:34
Jólamarkaður í Fellsborg

Á morgun klukkan 13-18 verður Jólamarkaður í félagsheimilinu Fellsborg á Skagaströnd. Ýmis konar söluvarningur er í boði, ljúfir jólatónar lífga upp á stemninguna og kaffisala verður á staðnum milli klukkan 14 og 17. Signý verður með nýbakaðar kleinur og ristaðar möndlur, Gígja með málverk, foreldrafélag Barnabóls með dagatöl og Gigga með heimagerðan brjóstsykur.

Þá verða Hallbjörg, Jóhanna Guðrún, Birta Dögg, Maggi Jóns, ESME, Óli Benna og Sigurlaug með handverk svo sitthvað er nefnt. Bíll smáframleiðenda verður einnig á svæðinu.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga