Tilkynningar | 28. nóvember 2022 - kl. 10:58
Lúðar og létt tónlist á Hvammstanga

Fimmtudagskvöldið 8. desember næstkomandi klukkan 21 mæta Lúðarnir með sína léttu tónlist í Félagsheimili Hvammstanga. Það hefur engin verið að bíða eftir þeim, en þeir eru samt að koma. Að þessu sinni samanstanda Lúðarnir af þeim Rögnvaldi Gáfaða, Val Frey og Summa sem eru hvað þekktastir fyrir vasklega framgöngu sína í hljómsveitinni Hvanndalsbræðrum, hinum ótrúlega Gísla Einarssyni sjónvarpsmanni og hagyrðingi og Frey Eyjólfssyni sjónvarps, tónlistar og útvarpsmanni en Freyr er einnig þekktur fyrir sínar frábæru eftirhermur.

Sem fyrr telur hópurinn í nokkur lög og segir sögur af fólki og búfénaði. Þetta verður kannski ekki vandað, en þetta verður gaman. Við biðjumst velvirðingar á þessum viðburði.

Miðaverð 4.900 krónur og forsala miða fer fram í félagsheimilinu milli klukkan 17-18 sama dag og einnig við hurð fyrir sýningu.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga