Fréttir | 29. desember 2022 - kl. 10:20
Styrktarbingó á Skagaströnd

Haldið verður bingó á veitingastaðnum Harbour á Skagaströnd föstudagskvöldið 30. desember klukkan 20 til styrktar fjölskyldu Evu Hrundar. Bingóið verður einnig í beinu streymi. Í auglýsingu um viðburðinn segir að í boði verða flottir og veglegir vinningar, m.a. frá Ölgerðinni, Fiskmarkaðnum, Nuddstofu Ernu, Kjörbúðinni, Blöndusport og Ísgel. Spjaldið kostar 1.500 krónur og þrjú spjöld eru á 4.000 krónur. Fólk nær og fjær getur spilað, þar sem hægt er að senda spjöldin í pósti.

Allar upplýsingar um viðburðinn og beint streymi er á Facebook: https://www.facebook.com/groups/366964741181552

Ef fólk vill ekki spila en vill styrkja fjölskyldu Evu Hrundar má leggja inn á reikning: 0123-15-45764 kt: 250576-3319.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga