Brekkubyggð 5 á Blönduósi
Brekkubyggð 5 á Blönduósi
Fréttir | 30. desember 2022 - kl. 13:38
Brekkubyggð 5 er Jólahús ársins 2022 í Húnabyggð
Valið af lesendum Húnahornsins

Lesendur Húnahornsins hafa valið Brekkubyggð 5 sem Jólahús ársins 2022 í Húnabyggð. Húsið er ríkulega skreytt jólaljósum sem fangar hinn sanna jólaanda og sannarlega vel að viðurkenningunni komið. Eigendur hússins eru Lára Dagný Sævarsdóttir og Ási Hrafn Grétarsson. Þetta er í þriðja sinn sem hús á Brekkubyggð fær viðurkenningu í jólaleiknum, fyrst árið 2001, þegar leikurinn hóf göngu sína, og svo árið 2019.

Þau hús sem tilnefnd voru oftast, fyrir utan Brekkubyggð 5, voru Fagranes í Langadal, Hlíðarbraut 19, Melabraut 13 og Skúlabraut 43. Þegar allar tilnefningar voru taldar hlaut Brekkubyggð 5 þær flestar og eru hér nokkur dæmi um umsagnir sem húsið fékk:

„Mjög fallegar skreytingar, sannur jólaandi“
„Vel og skemmtilega skreytt hús, fullt af fallegum jólaljósum“
„Fjölbreytt og falleg jólaljós sem gaman er að horfa á og skoða“
„Jólalegasta húsið á Blönduósi þessi jól“
„Virkilega vel skreytt hús“

Þetta var í 21. sinn sem lesendur Húnahornsins velja Jólahús ársins. Þau hús sem hlotið hafa viðurkenningu eru:

2022: Brekkubyggð 5
2021: Heiðarbraut 12
2020: Urðarbraut 15
2019: Brekkubyggð 21
2018: Hólabraut 11
2017: Skúlabraut 22
2016: Aðalgata 10 (Tilraun)
2015: Skúlabraut 1
2014: Hlíðarbraut 1
2013: Heiðarbraut 1
2012: Mýrarbraut 33
2011: Melabraut 19
2010: Mýrarbraut 35
2009: Hlíðarbraut 4
2008: Hlíðarbraut 8
2007: Ekkert val
2006: Sunnubraut 3
2005: Hlíðarbraut 8
2004: Hlíðarbraut 13
2003: Garðabyggð 1
2002: Hlíðarbraut 13
2001: Brekkubyggð 17

Húnahornið óskar íbúum Brekkubyggðar 5 innilega til hamingju með viðurkenninguna.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga