Fréttir | 01. janúar 2023 - kl. 00:01
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla
Nýárskveðja frá Húnahorninu

Húnahornið óskar Húnvetningum og landsmönnum öllum farsældar á nýju ári 2023 og þakkar fyrir góð samskipti og samfylgdina á árinu 2022. Megi nýja árið reynast öllum Húnvetningum gæfuríkt og gott.

Viðburðaríkt ár í Húnaþingi

Árið 2022 var viðburðaríkt ár í Húnavatnssýslum. Á þessu 21 ári Húnahornsins voru fluttar tæplega þúsund fréttir af mönnum og málefnum sem tengjast Húnavatnssýslum eða Norðurlandi vestra á einhvern hátt. Margar hverjar voru um málefni sveitarfélaganna í Austur-Húnavatnssýslu, m.a. í tengslum við sameiningarvinnu þeirra sem bar loks ávöxt þegar sveitarfélögin Blönduósbær og Húnavatnshreppur sameinuðust. Einnig voru fréttir af starfsemi íþrótta- og félagasamtaka fyrirferðarmiklar, sem og fréttir af uppbyggingu í ferðaþjónustu á svæðinu, húsnæðisuppbyggingu og fyrirtækjarekstri. Þá voru fréttir og tilkynningar af allskonar viðburðum, skemmtunum, tónleikahaldi og bæjarhátíðum algengar. Margir sendu inn fróðlegt og skemmtilegt efni sem birtist á pistlasíðu vefsins og eru þeim færðar hjartans þakkir fyrir. Sérstakar þakkir fá Ingi Heiðmar Jónsson fyrir Stökuspjall sitt og Sögukorn, og Jón Torfason fyrir þættina sína úr sögu Torfalækjarhrepps (Þættir úr sögu sveitar).

Ritstjórnarstefna Húnahornsins er eftirfarandi:

Huni.is hefur sérstakan áhuga á skemmtilegu mannlífi í Húnaþingi, atvinnulífi, framkvæmdum og framförum í héraðinu. Einnig eflingu byggðar og öllu því sem gerir Húnaþing sérstakt og jákvætt að lifa og starfa í eða heimsækja sem ferðamaður.

Huni.is berst fyrir sameiginlegum hagsmunum Húnvetninga og þolir illa að íbúar svæðisins fái ekki jafn góða þjónustu og aðrir landsmenn frá fyrirtækjum eða hinu opinbera í ýmsum málaflokkum.

Huni.is gerir þá kröfu til sveitarstjórnarmanna á svæðinu að þeir kappkosti að gera sitt besta í störfum sínum í þágu íbúanna af heilindum og áhuga.

Huni.is vill stuðla að aukinni samheldni og samstöðu Húnvetninga.

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga