Fréttir | 01. janúar 2023 - kl. 20:59
Líkt og undanfarin 17 ár býður Húnahornið lesendum sínum að velja mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu. Við biðlum til lesenda að senda inn tilnefningu í gegnum þar til gerðan rafrænan atkvæðaseðil. Hver og einn getur sent inn eina tilnefningu og er jafnframt óskað eftir ástæðu tilnefningarinnar. Maður ársins í Austur-Húnavatnssýslu getur verið einn einstaklingur eða hópur manna.
Allir lesendur Húnahornsins eru hvattir til að taka þátt í valinu - Smelltu hér.
Lesendur Húnahornsins völdu Karólínu Elísabetardóttur sem mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu árið 2021. Karolína er athafnakona og bóndi í Hvammshlíð í Skagabyggð. Vorið 2021 var undir forystu hennar hafin leit að erlendum rannsóknum sem sýna fram á lausnir gegn riðuveiki. Í kjölfarið var rannsóknarhópur stofnaður sem fann svo verndandi arfgen gegn riðu.
Þetta er í 18. sinn sem Húnahornið stendur fyrir vali á manni ársins í Austur-Húnavatnssýslu.
Valið stendur til miðnættis 19. janúar næstkomandi og verða úrslit kynnt degi síðar.
Menn ársins í Austur-Húnavatnssýslu síðustu ár eru þessir:
2021: Karólína Elísabetardóttir
2020: Valdimar Guðmannsson
2019: Björgunarsveitarfólk í Björgunarfélaginu Blöndu
2018: Guðjón Ragnarsson og hundurinn Tinni
2017: Eyþór Franzon Wechner
2016: Skarphéðinn Húnfjörð Einarsson
2015: Róbert Daníel Jónsson
2014: Brynhildur Erla Jakobsdóttir
2013: Elín Ósk Gísladóttir
2012: Kári Kárason og Pétur Arnar Kárason
2011: Einar Óli Fossdal
2010: Bóthildur Halldórsdóttir.
2009: Bóthildur Halldórsdóttir.
2008: Lárus Ægir Guðmundsson.
2007: Rúnar Þór Njálsson.
2006: Lárus B. Jónsson.
2005: Lárus B. Jónsson.
RAFRÆNN ATKVÆÐASEÐILL