Fréttir | 03. janúar 2023 - kl. 17:01
Nýr sóknarmaður til liðs við Kormák Hvöt

Meistaraflokksráð Kormáks Hvatar hefur gert samning við sóknarmanninn Ismael Sidibé um að hann leiki með liðinu næsta sumar. Ismael er frá Fílabeinsströndinni og Spáni og lék í 3. deild á Íslandi árið 2021 með Einherja á Vopnafirði. Skoraði hann 10 mörk í 13 leikjum, þar af tvær þrennur, en hann gekk til liðs við Einherja um mitt sumarið.

„Það er ljóst að Kormákur Hvöt blæs til sóknar með þessari örvfættu viðbót og gaman verður að fylgjast með í sumar (sem er jú bara fjóra mánuði í burtu),“ segir í tilkynningu meistaraflokksráðs.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga