Tilkynningar | 03. janúar 2023 - kl. 21:38
Frá félags- og tómstundastarfi Húnabyggðar

Óskum eftir ókláruðum krosssaumspúðum, myndum og fleiru sem er unnið með krossaum. Kostur er að það væri ámálað á stramman en skoðum allt. Ef einhver vill losa sig við og gefa okkur fyrir iðkendur sem sækja starfi værum við mjög þakklát. Þetta mega vera ábyrjuð verkefni. 

Einnig leitum við til ykkar um hvort þið eigið garn dokkur eða hespur sem má vinda upp. Einstaklingur sem sækir starfið hjá okkur hefur sína dægrastyttingu af því. Garn dokkur eru undnar upp en við endur vindum þær, þetta mega líka vera hnyklar (ekki lopi). Nú er gott að fara að taka til í garninu sínu og láta vinda það upp. Passað er vel upp á alla miða sem eru á garndokkum og þeir límdir aftur á. Margar hugmyndir eru í dag til að vinna upp garnið sitt.

Síminn hjá okkur er 455 4785. Netf sisab@hunabyggð.is.

Sæki og skila á 540 svæðinu ef óskað er eftir því annars má koma með til okkar að Þverbraut 1 á opnunartíma sem er mánudagar og fimmtudagar frá kl: 14/30-16/30.

Viljum við koma á þakklæti til allra þeirra sem lagt hafa okkur lið í þessu verkefni.

Fyrir hönd félags- og tómstundastarfs.
Sigríður Hrönn Bjarkadóttir (Sísa).

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga