Frá Blönduósi
Frá Blönduósi
Fréttir | 11. janúar 2023 - kl. 16:25
Húnabyggð auglýsir námsstyrki

Húnabyggð auglýsir á vef sínum námsstyrki sem veittir eru ungu fólki í viðurkenndu framhaldsnámi, alls 60.000 krónur á önn. Námstyrkirnir eru greiddir út eftir hverja önn að staðfestri skólavist. Aldur styrkþega miðast við 22 ára og þá við árið sem nemandinn verður 22 ára, ekki síðar. Þá þurfa nemendur sem óska eftir styrk að eiga lögheimili í Húnabyggð.

Frestur til að skila umsóknum vegna haustannar er til 20. janúar.

Umsókn er rafræn og má nálgast hér

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga