Mars 2023 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
26 | 27 | 28 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |


Holtavörðuh. | 11:10 | NA 12 | -6°C |
Laxárdalsh. | 11:10 | ANA 13 | -4°C |
Vatnsskarð | 11:10 | ANA 8 | -5°C |
Þverárfjall | 11:10 | ANA 13 | -5°C |
Kjalarnes | 11:10 | A 12 | 3°C |
Hafnarfjall | 11:10 | NNA 7 | 2°C |


30. október 2022 Stutt hugleiðing um íslenskunaSumum finnst ókurteisi að einhver tali íslensku og jafnvel móðgast fyrir hönd þeirra sem ekki tala hana. ::Lesa |
Í gær birti Skatturinn auglýsingu í Lögbirtingarblaðinu þar sem skorað er á eigendur 1.165 skráðra félaga um að skrá raunverulega eigendur félaganna. Verði það ekki gert á næstu tveimur vikum mun ríkisskattstjóri taka ákvörðun um að krefjast slita eða skipta á félögunum. Nokkur félög á listanum eru á Norðurlandi vestra, þar á meðal Lionsklúbbur Blönduóss, Leikklúbbur Skagastrandar, Starfsmannafélag Kaupfélags Skagfirðinga og Vörubílsstjórafélag Vestur-Húnavatnssýslu.
Áður en tveggja vikna frestinum lýkur getur fyrirsvarsmaður aðila óskað eftir því að fresturinn verði framlengdur allt að tveimur vikum og ber ríkisskattstjóra að verða við því ef hann telur lögmætar ástæður réttlæta frekari drátt á að skráningarskyldu sé sinnt.
Mörg félögin á lista Skattsins bera það með sér að þau hafa ekki verið í starfsemi lengi og á honum má finna starfsmannafélög fyrirtækja sem hafa hætt starfsemi. Hér má sjá nokkur félög sem eru á listanum og hafa tengsl við Norðurland vestra (ekki tæmandi upptalning).
- Húnabyggð 1,íbúðir aldraðra
- Stangaveiðifélag Sauðárkróks
- Veiðifélag Skagafjarðar
- Starfsmannafélag Kaupf Skagfirð
- Kirkjukór Sauðárkróks
- Verslunin Laugarbakki ehf
- Húnakórinn
- Leikklúbbur Skagastrandar
- Iceland Water Company Blönduos ehf
- Hrossaræktardeild Lýtingssthr
- Samfylkingin Skagafirði
- Tónlistarfélag Skagafjarðar
- Lionsklúbbur Blönduóss
- Taflfélag Blönduóss
- Vörubílstjórafélag V-Húnavatnss
- Vörubílstjórafélag Skagfirðinga
- Tónlistarfélag V-Húnvetninga
Ríkisskattstjóri hvetur alla þá sem eiga eftir að skrá raunverulega eigendur að ganga frá skráningu. Sjá má frekari leiðbeiningar á vefsíðu Skattsins og öll 1.165 félögin má sjá hér.

04. apríl 2022 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |

03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |