Mars 2023 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
26 | 27 | 28 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |


Holtavörðuh. | 10:20 | NNA 12 | -6°C |
Laxárdalsh. | 10:20 | ANA 12 | -4°C |
Vatnsskarð | 10:20 | A 13 | -6°C |
Þverárfjall | 10:20 | ANA 12 | -6°C |
Kjalarnes | 10:20 | ANA 14 | 3°C |
Hafnarfjall | 10:20 | NNA11 | -2°C |


30. október 2022 Stutt hugleiðing um íslenskunaSumum finnst ókurteisi að einhver tali íslensku og jafnvel móðgast fyrir hönd þeirra sem ekki tala hana. ::Lesa |
Þann 1. janúar síðastliðinn tók Barnaverndarþjónusta Mið-Norðurlands til starfa. Þjónustan er samstarf sex sveitarfélaga á Norðurlandi, frá Hrútafirði í vestri að Eyjafirði í austri. Skagafjörður er leiðandi sveitarfélag í Barnaverndarþjónustu Mið-Norðurlands og ber ábyrgð á barnavernd í nánu samstarfi við aðildarsveitarfélögin. Íbúar sem heyra undir þjónustuna eru 9.371, þar af 1.893 börn.
Sveitarfélögin sem standa að Barnaverndarþjónustu Mið-Norðurlands eru Fjallabyggð, Húnabyggð, Húnaþing vestra, Skagabyggð, Skagafjörður og Skagaströnd. Starfsmenn þjónustunnar eru níu og samanstanda af starfsmönnum fyrri barnaverndarnefnda sem lagðar voru niður um áramótin með nýrri löggjöf. Félagsmálastjórar umræddra sveitarfélaga mynda fagráð þjónustunnar og stýra mótun hennar. Yfirmaður þjónustunnar er Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, félagsmálastjóri Skagafjarðar.
Vikulegir meðferðarfundir ákvarða málsmeðferð einstakra barnaverndarmála þar sem allir starfsmenn þjónustunnar mynda heildstætt teymi þekkingar, menntunar og reynslu en þeir eru Anton Sheel Birgisson sálfræðingur í Húnaþingi vestra, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir félagsmálastjóri í Skagafirði, Helga Helgadóttir ráðgjafi félagsþjónustu í Fjallabyggð, Hjörtur Hjartarson deildarstjóri félagsmáladeildar Fjallabyggðar, Margrét Petra Ragnarsdóttir félagsráðgjafi í barnavernd í Skagafirði, Sara Lind Kristjánsdóttir félagsmálastjóri í Félags- og skólaþjónustu Austur-Húnavatnssýslu, Sigrún Elva Benediktsdóttir félagsráðgjafi í barnavernd í Skagafirði, Sigrún Líndal Þrastardóttir ráðgjafi og iðjuþjálfi í Austur-Húnavatnssýslu og Sigurður Þór Ágústsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs í Húnaþingi vestra.
Barnaverndarþjónusta Mið-Norðurlands er einnig aðili að Umdæmisráði landsbyggðanna, en þangað færast mál ef taka þarf ákvarðanir í andstöðu við foreldra og börn.
Fólk getur hringt í Neyðarlínuna, 112 og tilkynnt um óviðunandi aðstæður barna. Neyðarlínan er opin allan sólarhringinn.

04. apríl 2022 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |

03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |