Gunnlaugur Ragnarsson stjórnarformaður og Örvar Birkir nýr framkvæmdastjóri Selasetursins. Mynd: selasetur.is
Gunnlaugur Ragnarsson stjórnarformaður og Örvar Birkir nýr framkvæmdastjóri Selasetursins. Mynd: selasetur.is
Fréttir | 15. janúar 2023 - kl. 11:12
Örvar nýr framkvæmdastjóri Selasetursins

Stjórn Selaseturs Íslands hefur ráðið Örvar Birki Eiríksson sem framkvæmdastjóra Selasetursins og tekur hann við starfinu af Páli Línberg Sigurðssyni sem hefur gegnt því síðastliðin tvö ár. Örvar er Húnvetningur, fæddur á Syðri-Völlum í Kirkjuhvammshreppi í Vestur-Húnavatnssýslu árið 1976. Hann hefur verið tíður gestur á heimaslóðum í gegnum tíðina þar sem foreldrar hans búa enn og á því mikla og sterka tengingu við samfélagið í Húnaþingi vestra, eins og segir í tilkynningu frá stjórn Selasetursins.

Örvar er með BA gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands og stundaði auk þess MA nám í sama fagi og diplómanám í markaðs- og útflutningsfræðum. Nú síðast lauk hann M.Ed. gráðu í kennslu samfélagsgreina frá Háskóla Íslands. Örvar er kvæntur Erlu Björgvinsdóttur þroskaþjálfa og eiga þau samtals fimm börn. Örvar starfaði meðal annars um sjö ára skeið í Viðey við menningartengda ferðaþjónustu og í níu ár sem verslunarstjóri í alþjóðlegri verslunarkeðju. Síðustu ár hefur hann starfað sem kennari.

Í tilkynningu frá stjórn Selasetursins er Örvar boðinn velkominn til starfa og Páli þakkað kærlega fyrir vel unnin störf.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga